13nóvember

Góða kvöldið býst ég við...

Ég verð að skrifa eitthvað núna...
Ég verð líka víst að játa það að ég er óttalegur pólitíkus í mér... og fyrirgefiði mér fyrir þessi skrif en hvað eru sunnlendingar að spá með það að láta Árna Johnsen fá þingsæti bara svona einn tveir og bingó?
Er ekki allt í lagi... Nú er ég sunnlendingur í húð og hár og hér sit ég heima hjá mér og velti því fyrir mér hvort að við eigum nú ekki hæfara fólk en hann eða Eyþór Arnalds... fáum við ekkert nema tugthúslimi eða flóttamenn frá Reykjavík hingað.. sem að by the way brjóta svo af sér fimm mínútum fyrir kosningar?!?!
Mér finnst það mjög svo furðulegt að við þetta líka stóra kjördæmi sem að nær allt frá Reykjanesskaganum austur á Höfn í Hornafirði eigi ekki eitthvað mjög svo áhugasamt fólk sem að nennir að standa í þessum bardaga sem pólitíkin er.... En any who þá nenni ég nú ekki að vera að ergja mig á þessu þar sem að allir sem ég þekki vita það að ég er svo lítil sjálfstæðismanneskja... en mér er samt auðvitað annt um hvaða fólk situr á þingi!! Eitt vil ég segja að lokum... Til hamingju með kosninguna Björgvin þetta var rosalega flottur sigur!!

Svo að ég snúi mér nú að öðru... Þá gengur lífið bara sinn vanagang... Ekkert gengur með að byrja á Björgunarmiðstöðinni þannig að við sjáum ekki fyrir að við verðum að flytja inn í nýtt hús fyrr en einhvern tíman næsta haust eða eitthvað!! Fýldur
Vinnan er svona bara eins og venjulega... Er að vísu mjöööög svo fegin því að vera ekki að keyra vörubíl núna... Væri örugglega búin að eyðileggja eitthvað í allri þessari hálku og þessu ógeðisveðri sem er búið að vera hérna á klakanum undanfarið!! :(

En ætli ég verði ekki að fara að koma mér í bælið og fara að sofa eitthvað í hausinn á mér svo að ég geti kannski vaknað í vinnuna í fyrramálið!! ;)
13. nóvember 2006 klukkan 07:18
Eva Hrund Aðalbjarnardóttir
3 athugasemdir
06nóvember

Nýtt blogg...

    Hæhæ Eva hér... Pæliði aðeins í því það var búið að "stela" léninu mínu ætlaði auðvitað að hafa litlaljót sem byrjunina en neeeeiii það má ekkert sem að gaman er og gott þykir...

En ákvað að prófa að vera hér af því að það er ekki eins erfitt að setja inn myndir hér  eins og hinumeginn....

Og ég hendi inn nokkrum myndum kannski bara seinna í kvöld eða eitthvað!! ;)

Vonandi les þetta einhver!! ;)     
06. nóvember 2006 klukkan 01:34
Eva Hrund Aðalbjarnardóttir
2 athugasemdir

Aðalvalmynd

Auglýsing

Könnun

Á ég ekki eftir að standa mig í dk?

Prófíll

  • Nafn: Eva Hrund Aðalbjarnardóttir
  • Atvinna: Lærlingur í MBF
  • Hjúskaparstaða: Einhleyp...
  • Um mig: Ég er komin á þrítugsaldurinn og það hræðir mig!! ;) Neinei maður verður að eldast! Annars er ég þessi stelpa sem að hlustar á rokk og teknó til að komast í stuð... Ég veit ekki hvað ég á að segja... Jú ég bý í víst í Dk eins og er... kem heim í endaðan júní og hlakkar til að hitta ykkur!! :D

Klukkan

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Atburðarteljari

Undirsíðukubbur