Nú fer bara að koma að næstu utanlandsferð...

Djöfull er orðið ógeðslega dýrt að ferðast... Ég er búin að bóka flug til Danmerkur og vóóó er þetta dýrt en ég var nú samt heppin fékk ódýrasta farið á Icelandexpress en ætla sko að koma heim með icelandair og það er bara 40.000 kall ég sagði bara góðan dag.... En nú er ég búin að pirra mig á því... en það er staðreynd að ég fer út þann 9. október í mjög svo góðum félagsskap og ætla þau að leyfa mér að hanga með þeim yfir helgina og þannig get ég undirbúið mig undir þriggja mánaða skólasetu... hálf furðulegt að setjast á skólabekk aftur eftir allan þennan tíma sem að ég hef verið í fríi...
Að öðru eruði ekki að grínast hvað við eigum frábært handboltalandslið... Þeir eiga sko allt gott skilið þessir strákar og gaman að sjá hvað þeir ungu slá þeim gömlu ekkert við... Við erum sennilega búin að eignast einn þann besta markvörð sem að Ísland hefur nokkurn tíman átt.... Ruglingsleg setning ég veit en einhvern veginn eina leiðin sem ég hef til að tjá þetta...
Annars er nú ekki mikið búið að vera að gerast hjá mér undanfarið aðallega bara vinna og lítið annað komist að... Skrapp til Eyja um versló og skemmti mér konunglega... Svo er ég að fara á harkaranámskeið á morgun það er sum sé seinasta námskeiðið til að ég geti orðið leigubílstjóri! Hlakka til...
En þangað til næst... heyrumst!!
25. ágúst 2008 klukkan 14:01
Eva Hrund Aðalbjarnardóttir
Stebba skrifar ...
Úff já aldeilis búið að hækka verðið á fluginu! Hvernig gekk annars á harkaranámskeiðinu skvís? Og sammála með landsliðið! Maður er ekkert smá stoltur af þessum strákum ;)
26. ágúst 2008 klukkan 18:04
Eva skrifar ...
Ég held að ég hafi verið hæst í mínum bekk var allavega með 10 í öllum prófunum!! ;) Þannig að ég get farið að keyra um leið og ég fæ akstursleyfið.... :P
29. ágúst 2008 klukkan 13:15
Lórey Rán skrifar ...
úff já það er sko búin að hækka í flug það má með sanni segja, en er samt ekki hægt að finna e-ð sem er aðeins minna en 40000 fyrir heimferðina, finnst það annsi mikið:O Verður samt gaman að eyða helginni með vinum úti köben;) Verður svo að vera duglegri að blogga þegar þú verður byrjuð í skólanum þarna úti;)
En heyrðu við komum ekki uppá land fyrstu helgina í okt, við komum fyrr=) hehe, þarnæstu helgi held ég, því það á að vera ball með pöpunum hérna í eyjum þann 4 þeir eiga s.s að vera að spila á hippaballinu!;) Langar þér að koma??:) En mun láta heyra í mér þegar ég kem uppá land;)
16. september 2008 klukkan 14:29
a skrifar ...
Hæ Lórey ég kemst því miður ekki til Eyja þá... Starfsmannafélagið í vinnunni er að bjóða í mat og á ball!! ;) En við verðum að fara að hittast fljótlega!!!
16. september 2008 klukkan 17:36

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing

Könnun

Á ég ekki eftir að standa mig í dk?

Prófíll

  • Nafn: Eva Hrund Aðalbjarnardóttir
  • Atvinna: Lærlingur í MBF
  • Hjúskaparstaða: Einhleyp...
  • Um mig: Ég er komin á þrítugsaldurinn og það hræðir mig!! ;) Neinei maður verður að eldast! Annars er ég þessi stelpa sem að hlustar á rokk og teknó til að komast í stuð... Ég veit ekki hvað ég á að segja... Jú ég bý í víst í Dk eins og er... kem heim í endaðan júní og hlakkar til að hitta ykkur!! :D

Klukkan

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Atburðarteljari

Undirsíðukubbur