Heimkoma nálgast!
Hér sit ég ein inni í herberginu mínu með bjór í hönd og get ekki beðið eftir að morgundagurinn komi! Því að ég er að fara að pakka í töskurnar á morgun og taka til í herberginu mínu sem að verður kannski ekki það skemmtilegasta... en ég hugsa samt að það eigi eftir að reddast vegna þess að ég er að fara að koma heim!! Jiii maður veit einhvern ekki hvað maður hefur það gott heima hjá sér fyrr en maður prófar að vera annars staðar... En svo er bara fullpakkaður júlímánuður framundan... langar rosalega mikið í útilegu en efast um að ég hafi tíma í það... Það verður þá bara gert í Ágúst...Ég skil samt ekki hvað ég er eitthvað andlaus og eirðarlaus... hélt að maður ætti að vera svífandi um á bleiku skýi þegar maður er svona spenntur fyrir einhverju en einhvern veginn er það ekki þannig... en ég er búin að vera að bíða eftir þessum 28. júní síðan 31. mars!! :P
Já ég vann síðasta vinnudaginn minn í Thise í dag og þetta var bara ótrúlega góður dagur... var alveg búin að búa mig undir að hann myndi bara ekki líða neitt og ég væri alltaf á klukkunni en nei fékk að hjálpa til í smjörgerðinni þannig að dagurinn leið bara ágætlega hratt þannig að ég þurfti ekkert að vera að kíkja á klukkuna á 2 mínútna fresti!! :P Ég gaf búinu bók um norðurljósin... fannst það gáfulegra en að koma bara með kassa af bjór eins og allir hinir!!;) ég fékk mörg komment um að þetta væri falleg bók... þannig að ég er bara nokkuð sátt... en mikið verður ofboðslega gott að sjá jógúrtvélarnar mínar aftur!! ;) ekki veit ég hvernig er hægt að sakna vinnunar sinnar... hefur aldrei liðið svona áður... ;)
Eins og þið sjáið er ég óttalega andlaus... Ætli ég segi þetta ekki bara gott í bili og við sjáumst bara öll sem fyrst og heyrumst... hlakka svo til að sjá alla!!
ÉG ER AÐ KOMA HEIM!! ;)
25. júní 2008 klukkan 18:11
Eva Hrund Aðalbjarnardóttir
Eva Hrund Aðalbjarnardóttir
