Ekki mikið að frétta!!

Já ég er enn á lífi en það er svo sem ekkert mikið að frétta þannig séð...
Ég er búin að komast að því að það eina sem að ég fæ að heyra af Eurovision er úrslitakvöldið... það er sko ekki svona stemning fyrir Eurovision hér eins og er heima... það er sko alveg á kristal tæru!!:P En annars er ég bara að vinna á næturvöktum í mjólkurpökkun... Sem að er rosa fínt... rosa rólegt en bara alveg ágætis vinna... en samt er ekkert spennandi að hjóla heim í svarta myrkri og á ljóslausu hjóli en þetta reddast... er komin með rosa góða nætursjón!;) get ekki beðið eftir að komast heim í langan dag :P Það verður alveg fáránlega dimmt hérna á nóttunni!!:S Svo sofna ég yfirleitt ekki fyrr en að það er farið að birta aftur sem að er ekki sniðugt vegna þess að þá sef ég voða lítið af því að mér finnst svo óþægilegt að sofa í birtu... vil helst hafa myrkvunartjöld í herberginu mínu... en hér eru engar gardínur... er rosa feginn að vera á annarri hæð þegar að maður er að klæða sig og svona!! ;)

Og ástæðan fyrir því að það eru engar myndir komnar inn er sú að ég gleymdi snúrunni heima... Þannig að það koma engar myndir fyrr en að ég kem heim býst ég við og það styttist nú óðum í það... bara rétt rúmar 5 vikur í síðasta vinnudaginn... ætla nefnilega að reyna að fá frí fimmtudag og föstudag áður en ég kem heim... bara svona til að þrífa herbergið og hafa svona smá my time...:P Fæ ekki helgarfrí fyrr en eftir 3 vikur held ég þannig að það er bara vinna framundan og allt á næturvöktum!!;) Þannig að tíminn á eftir að vera fljótur að líða á meðan að mamma og pabbi eru í sólinni á Tenerife... heyri í mömmu á hverjum degi sem að bjargar alveg deginum mínum en er búin að semja við bróðir minn um það að hlusta á tuðið í mér á meðan að mamma er í útlöndum... er nefnilega búin að komast að því að ég er rosa háð mömmu minni!!;) og ég er bara stolt af því...:P

En ég held að ég sé búin að bulla nóg núna... kommenta svo!!;)
20. maí 2008 klukkan 16:19
Eva Hrund Aðalbjarnardóttir
Stebba skrifar ...
Held þú sért ekki að missa af mjög miklu með júróvísjón draslinu skvís ;) En hvað meinaru með gardínuleysinu?! verðuru ekki að skítmixa eitthvað sjálf bara ? ;)
20. maí 2008 klukkan 17:16
Eva skrifar ...
Ég held að það gæti orðið svoldið erfitt að skítmixa eitthvað sjálf... Þetta er nefnilega svona hallandi þakgluggi!! ;)
21. maí 2008 klukkan 01:42

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing

Könnun

Á ég ekki eftir að standa mig í dk?

Prófíll

  • Nafn: Eva Hrund Aðalbjarnardóttir
  • Atvinna: Lærlingur í MBF
  • Hjúskaparstaða: Einhleyp...
  • Um mig: Ég er komin á þrítugsaldurinn og það hræðir mig!! ;) Neinei maður verður að eldast! Annars er ég þessi stelpa sem að hlustar á rokk og teknó til að komast í stuð... Ég veit ekki hvað ég á að segja... Jú ég bý í víst í Dk eins og er... kem heim í endaðan júní og hlakkar til að hitta ykkur!! :D

Klukkan

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Atburðarteljari

Undirsíðukubbur