Jáá... langar heim en ekki útaf heimþrá!!

Ég held að ég gæti ekki verið meira að mygla í þessari vinnu sem að ég er í... Var rosa bjartsýn þegar ég mætti á mánudaginn af því að ég átti loksins að fá að gera eitthvað annað en að strauja! En neinei ég var þar held ég í 2 tíma og þá var ég kölluð aftur á straujárnið... og blessuð kellingin vill engan annan en mig sem að ég veit ekki alveg hvort er gott eða vont... hún er nú svo sem alveg ágæt þegar hún er ekki að öskra á mig... Það er nefnilega einhvern veginn allt mér að kenna alveg sama hvort að ég kem eitthvað nálægt því eða ekki!! En það er bara svona að vera lítill ljótur nemi... finnst þetta svoldið leiðinlegt en þetta styrkir mann bara... Það er að segja þegar ég er að berjast við að öskra á hana á móti... ég nefnilega á að vera fullkomin!! ;)

En það var nú rosalega gaman hjá mér á mánudaginn... fór með tveimur flottum strákum á bar, út að borða á Hereford og í bíó... Við byrjuðum á því að keyra til Skive ég og strákurinn sem að býr með mér um klukkan 6 og fórum og hittum verkstjórann okkar á bar í Skive og fengum okkur einn kaldan í geggjuðu veðri... sá eiginlega eftir því að hafa ekki farið í pilsinu mínu!! ;) svo keyrðum við á Hereford sem að er alveg við smábátahöfnina og var geeeeeggjaaað útsýni frá staðnum bæði inní skóg og svo út á höfnina... Svo þegar við vorum öll búin að borða drifum við okkur í bíó á myndina Iron Man sem að kom mér bara nokkuð á óvart... hugsa nú samt að greyið strákarnir hafi skammast sín pínu þegar að ég hló á "vitlausum" stöðum í myndinni... komst alveg að því að danirnir hafa ekki sama húmor og Íslendingarnir...:P þannig að ég kæfði hláturinn eiginlega bara niður!! :P en svo var bara farið heim eftir mjög velheppnað kvöld!! :D Hvað haldiði annars að ég hafi fengið að borga mikið af þessu öllu saman??;) Svo er eitthvað verið að spekulera að fara eitthvað föstudagskvöldið til Skive og fara í keilu... Hlakka mikið til alltaf gott að hafa eitthvað fyrir stafni... fer nefnilega að fá leið á öllum myndunum mínum og er búin með báðar bækurnar sem að ég kom með sem að ég bjóst alls ekki við vegna þess hve löt ég hef verið við að lesa síðustu árin!! ;)

En það næsta sem að ég hef komist mjólkurfræðingastarfi hérna er sem sagt þessi vika sem að ég var að keyra ostamjólk fram í körin!! ;) annars hef ég verið að strauja osta og raða þeim á bretti eða raða skyri og jógúrti á bretti... en ég fæ nú að kíkja í ostagerðina í þar næstu viku og svo aftur í vélasalinn að keyra ostamjólk!! Svo fer ég bara að koma heim fyrr en varir... ég er nefnilega alveg að verða hálfnuð!! :P

Jáááá ég held að þetta sé bara orðið ágætt hjá mér er það ekki... koma fleiri fréttir seinna!! ;) Vonast samt til að heyra í sem flestum sem að vilja heyra í mér áður en ég kem heim!! ;) 
08. maí 2008 klukkan 14:32
Eva Hrund Aðalbjarnardóttir
Ágústa skrifar ...
Voða eru þetta herralegir ungir karlmenn!!!:-) Frábært að þú sért að fá að prófa eitthvað fjölbreyttara verkefni en að strauja osta, úfff get ég ímyndað mér að tíminn líði hægt.
Ég væri sko vel til í að vera í Danmörku núna því hér fyrir austan er allt hvítt yfir að líta og frost:-(
Kveðja úr frostbælinu, Brúarási! ;-)
09. maí 2008 klukkan 18:12
Birgir skrifar ...
Heyja!! Ég var nú eiginlega bara búinn að gleyma þessu bloggi þínu, hafði ekkert komið inn svo geðveikt lengi. En þú ert sem sagt orðin virk hérna aftur og það er gott! Bið bara að heilsa þér og kóngulónum! Hilsen
Birgir
11. maí 2008 klukkan 09:55
Stebba skrifar ...
Líst vel á þig skvis að vera byrjuð aftur í blogginu :) Ertu ekki orðin hálfnuð núna? Ég var að koma heim úr vinnunni, fyrsti vinnudagurinn búinn, þetta var bara ágætt, held ég verði í allskonar afleysingum við hitt og þetta, virðist bara spennandi :)
13. maí 2008 klukkan 16:30

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing

Könnun

Á ég ekki eftir að standa mig í dk?

Prófíll

  • Nafn: Eva Hrund Aðalbjarnardóttir
  • Atvinna: Lærlingur í MBF
  • Hjúskaparstaða: Einhleyp...
  • Um mig: Ég er komin á þrítugsaldurinn og það hræðir mig!! ;) Neinei maður verður að eldast! Annars er ég þessi stelpa sem að hlustar á rokk og teknó til að komast í stuð... Ég veit ekki hvað ég á að segja... Jú ég bý í víst í Dk eins og er... kem heim í endaðan júní og hlakkar til að hitta ykkur!! :D

Klukkan

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Atburðarteljari

Undirsíðukubbur