Danmörk...
Já hér er ég í Danaveldi að láta mér leiðast og er búin að vera að gera það í rétt tæpan mánuð núna... þannig að það eru bara 2 mánuðir eftir í að ég komist heim til allra vinanna minna... Sakna allra rosa mikið...Annars er allt gott að frétta... ég bara vinn eins og hestur og reyni að láta daginn líða sem hraðast með að vera á netinu og svona!!;)
Ég bý í gríðarlega gömlu húsi sem að marrar og ískrar í eins og því sé borgað fyrir það og það eru köngulóarvefir út um allt!! :S ekki uppáhaldið mitt eins og margir vita...
Ég er að verða meistari í að strauja osta... já þið lásuð rétt ég er búin að vera í 3 vikur að strauja merkimiða á osta og pakka þeim inn í álpappír... En það lýtur nú allt út fyrir að ég fái að búa osta til í næstu viku... vona það allavega vegna þess að jesús minn almáttugur líður tíminn ofboðslega hægt þegar maður er bara með straujárnið... Verð nú samt orðin rosa massatröll ef að ég myndi halda áfram í þessari vinnu því að hver og einn ostur er svona sirka 8 kg og ætli ég sé ekki að strauja og setja á færiband svona 500 - 1000 osta á dag!!
Svo fór ég í fyrsta reiðnámskeiðstímann minn á þriðjudaginn og það var rosa gaman var á risastórum hesti þannig að ég eiginlega varð bara lofthrædd og jiiii hvað þeir eru hastir er með svaka harðsperrur í rassinum ennþá!!
Svo er ég að fara til Köben á morgun að hitta mömmu sem að er í heimsókn í Köben með vinnunni sinni og það er svaka tilhlökkun í gangi... er að reyna að koma mér í að fara að setja niður í tösku það sem að ég þarf að hafa með mér...
Set svo inn myndir þegar að ég er búin að taka þær en ég ætla að láta þetta nægja í bili af bulli heyrumst... endilega að kommenta þó að þetta sé ekki merkileg færsla... Ekki nema að tekið sé tillit til þess að ég hef ekki bloggað síðan í Febrúar.... ;)
24. apríl 2008 klukkan 16:12
Eva Hrund Aðalbjarnardóttir
Eva Hrund Aðalbjarnardóttir

Sakna þín!;*
ps. flott ljóð hjá þér:)