Jæja langt síðan síðast....

Jæja hvað á ég að segja ykkur merkilegt??
Ég fór í leikhús á föstudaginn sem er eitthvað sem að ég hef ekki gert síðan 2003 held ég.... Fór að sjá Jesus Christ Superstar... það var rosa gaman en ég hefði viljað hafa bara gömlu textana áfram sá ekki alveg tilganginn í því að breyta textunum en það er bara mín skoðun og svo finnst mér Krummi bara ekkert ofboðslega spes söngvari! En Jenni var rosa góður og á heildina litið var þetta mjög gaman... Sat við hliðina á voða sætum strák sem að var rosa gaman en rosa vandræðalegt!!:S:P hehe

Já og svo er ég að fara austur eftir tvær vikur hlakka rosa til að vera svona með Birgi og Ágústu aftur hjá þeim ég elska að vera fyrir austan það er svo fallegt landslagið og maður þarf ekki að labba nema bara í svona 10 mínútur og þá er maður komin að jökulsá og rosa flottu gljúfri... Rosa flott maður ég á einmitt nokkrar myndir af því síðan að familían fór þangað í haust!!

Svo styttist óðum í Danmerkur ferðina margræddu... er að vísu ekki búin að kaupa flugmiðana en það hlýtur að fara að koma að því.... Strákarnir fyrir norðan eru ekkert að flýta sér að þessu og ég ætlaði að reyna að vera samferða þeim svona til að maður sé ekki alveg einn, við þurfum að gista eina nótt á hóteli í Köben og svo að keyra til Odense og hitta þar mjólkurbússtjórana okkar... Váá ég get ekki ímyndað mér hversu mikill klaufi ég á eftir að vera í dönskunni fyrsta mánuðinn svo hlýtur þetta að koma... ég trúi ekki öðru en að ég eigi eftir að vera orðin rosa fluent í dönsku þegar ég kem heim aftur maður ég hlýt að ná þessu!! :P Er ekki alltaf gott að vera bjartsýnn? ;)

Jæja er þetta ekki komið gott af bulli í bili??
18. febrúar 2008 klukkan 17:08
Eva Hrund Aðalbjarnardóttir
Lórey skrifar ...
jey! blogg;) hehe dugnaður í þér elskan!;*
Verður samt að vera aðeins duglegri þegar þú ferð til DK, sjeise! styttist óðum í ferð þína!:) En held að það eigi eftir að vera gaman fyrir austan hjá Birgi og frú:)
Hlakka ekkert smá til að sjá J.C.S en hef bara einu sinni heyrt Krumma syngja en man ekki eftir því....hmm en ég sé þig á mrg skvísa;)
19. febrúar 2008 klukkan 00:34
Hildur Björk skrifar ...
heeellúu mér finnst sko að þú ættir að vera duglegri að blogga víst að þú ert nú komin í danaveldið maður hefur ekki heyrt í þér geggjað lengi :(

Kv úr eyjum
Hildur
09. apríl 2008 klukkan 18:42
Eva skrifar ...
Já ég skrifa um leið og ég hef eitthvað að segja... mér finnst svo asnalegt að segja bara hæ hér er ég!!

Ég veit að það er langt síðan við heyrðumst síðast en við heyrumst í seinasta lagi á þjóðhátíð!! Það er í síðasta lagi!! Örugglega fyrr...
15. apríl 2008 klukkan 19:17

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing

Könnun

Á ég ekki eftir að standa mig í dk?

Prófíll

  • Nafn: Eva Hrund Aðalbjarnardóttir
  • Atvinna: Lærlingur í MBF
  • Hjúskaparstaða: Einhleyp...
  • Um mig: Ég er komin á þrítugsaldurinn og það hræðir mig!! ;) Neinei maður verður að eldast! Annars er ég þessi stelpa sem að hlustar á rokk og teknó til að komast í stuð... Ég veit ekki hvað ég á að segja... Jú ég bý í víst í Dk eins og er... kem heim í endaðan júní og hlakkar til að hitta ykkur!! :D

Klukkan

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Atburðarteljari

Undirsíðukubbur