Djöfull er orðið ógeðslega dýrt að ferðast... Ég er búin að bóka flug til Danmerkur og vóóó er þetta dýrt en ég var nú samt heppin fékk ódýrasta farið á Icelandexpress en ætla sko að koma heim með icelandair og það er bara 40.000 kall ég sagði bara góðan dag.... En nú er ég búin að pirra mig á því... en það er staðreynd að ég fer út þann 9. október í mjög svo góðum félagsskap og ætla þau að leyfa mér að hanga með þeim yfir helgina og þannig get ég undirbúið mig undir þriggja mánaða skólasetu... hálf furðulegt að setjast á skólabekk aftur eftir allan þennan tíma sem að ég hef verið í fríi... Að öðru eruði ekki að grínast hvað við eigum frábært handboltalandslið... Þeir eiga sko allt gott skilið þessir strákar og gaman að sjá hvað þeir ungu slá þeim gömlu ekkert við... Við erum sennilega búin að eignast einn þann besta markvörð sem að Ísland hefur nokkurn tíman átt.... Ruglingsleg setning ég veit en einhvern veginn eina leiðin sem ég hef til að tjá þetta... Annars er nú ekki mikið búið að vera að gerast hjá mér undanfarið aðallega bara vinna og lítið annað komist að... Skrapp til Eyja um versló og skemmti mér konunglega... Svo er ég að fara á harkaranámskeið á morgun það er sum sé seinasta námskeiðið til að ég geti orðið leigubílstjóri! Hlakka til... En þangað til næst... heyrumst!!
25. ágúst 2008 klukkan 14:01
Eva Hrund Aðalbjarnardóttir 4 athugasemdir
Hér sit ég ein inni í herberginu mínu með bjór í hönd og get ekki beðið eftir að morgundagurinn komi! Því að ég er að fara að pakka í töskurnar á morgun og taka til í herberginu mínu sem að verður kannski ekki það skemmtilegasta... en ég hugsa samt að það eigi eftir að reddast vegna þess að ég er að fara að koma heim!! Jiii maður veit einhvern ekki hvað maður hefur það gott heima hjá sér fyrr en maður prófar að vera annars staðar... En svo er bara fullpakkaður júlímánuður framundan... langar rosalega mikið í útilegu en efast um að ég hafi tíma í það... Það verður þá bara gert í Ágúst... Ég skil samt ekki hvað ég er eitthvað andlaus og eirðarlaus... hélt að maður ætti að vera svífandi um á bleiku skýi þegar maður er svona spenntur fyrir einhverju en einhvern veginn er það ekki þannig... en ég er búin að vera að bíða eftir þessum 28. júní síðan 31. mars!! :P Já ég vann síðasta vinnudaginn minn í Thise í dag og þetta var bara ótrúlega góður dagur... var alveg búin að búa mig undir að hann myndi bara ekki líða neitt og ég væri alltaf á klukkunni en nei fékk að hjálpa til í smjörgerðinni þannig að dagurinn leið bara ágætlega hratt þannig að ég þurfti ekkert að vera að kíkja á klukkuna á 2 mínútna fresti!! :P Ég gaf búinu bók um norðurljósin... fannst það gáfulegra en að koma bara með kassa af bjór eins og allir hinir!!;) ég fékk mörg komment um að þetta væri falleg bók... þannig að ég er bara nokkuð sátt... en mikið verður ofboðslega gott að sjá jógúrtvélarnar mínar aftur!! ;) ekki veit ég hvernig er hægt að sakna vinnunar sinnar... hefur aldrei liðið svona áður... ;) Eins og þið sjáið er ég óttalega andlaus... Ætli ég segi þetta ekki bara gott í bili og við sjáumst bara öll sem fyrst og heyrumst... hlakka svo til að sjá alla!! ÉG ER AÐ KOMA HEIM!! ;)
25. júní 2008 klukkan 18:11
Eva Hrund Aðalbjarnardóttir 1 athugasemd
Jahérna hér... það kom bara stór jarðskjálfti í mínum heimabæ... og ég ekki heima... ætli Ísland sé farið að sakna mín svona mikið að það bara hristist og skelfur?? ;) ég held að það verði aðeins að gantast með þetta líka... Það sem að er ljósið í þessum fréttum er að enginn slasaðist sem að er alveg hreint ótrúlegt... alltaf erum við jafn heppinn á þessu litla landi... held að það hafi ekki verið manntjón í jarðskjálfta síðan 1896... það er eitthvað sem að vakir yfir okkur íslendingum það er alveg á tæru!.. ég tel það ekki að slasast þó að það hafi verið ein og ein skráma og eitt eða tvö brot... ég tel það vera fyrir mestu að það er allt í lagi með alla þó að andlega sjokkið hjá sunnlendingum eigi eftir að koma í ljós eftir að fólk er búið að ná áttum... Sá til dæmis fréttir á stöð 2 hvort að það var í gær og þá var par sem hafði gift sig í fyrrasumar og mest af brúðargjöfunum voru ónýtar og það er kannski mikið meira tilfinningalegt sjokk en fjárhagslegt en fólkið eiginlega hló... þetta er eitt af einkennum sjokks... En mér finnst það frábært hvað allir eru rólegir og yfirvegaðir... sem að er líka mjög mikilvægt fyrir börnin sem að finna ekki síður fyrir þessu og fannst mér mikið til þess koma að fréttastofurnar vildu líka tala við börnin ekki bara fullorðna fólkið... En svo ætla ég að koma að miður skemmtilegum hlutum... Munurinn á forseta Íslands og forsætisráðherra... Forseti Íslands fór strax sama dag á skjálftasvæðið og talaði við fólkið á staðnum bara til að veita andlegan stuðning. Forsætisráðherra og utanríkisráðherra komu degi seinna og fóru þá beint að funda með almannavörnum sem að er gott og blessað svo fór það á fjöldahjálparstöðina á Selfossi að tala við fólkið sem að var að vinna þar... ekki fólkið sem að var þar til að leita sér hjálpar....
En enn og aftur sýnir sig að þegar að náttúruhamfarir ríða yfir litla Ísland hjálpast allir að og björgunarsveitirnar unnu stórkostlegt verk... Þó að bfá, HSSH, björgunarsveitin Björg á Eyrarbakka og Mannbjörg í Þorlákshöfn hafi alveg eins mikið lent í skjálftanum eins og hinir sunnlendingarnir þá fóru þeir beint í útkall til að hjálpa öðrum... Get ekki lýst því hvað mig langaði mikið að taka næstu vél heim og vera með í aðgerðunum... mann langar alltaf mest að vera heima hjá sér þegar svona gerist...
En nóg af skjálftanum... hér er bara steikjandi hiti eins og venjulega... las það á mbl um daginn að þetta væri sólríkasti maí mánuður í Danmörku síðan 1947 þannig að ekki get ég kvartað undan veðri svo mikið er víst... en að vakna í herbergi sem að er yfir 30 gráður í er ekkert ofboðslega skemmtilegt svona til lengdar og svo náttúrulega hitnar bara með hverjum deginum... ég er rosalega ánægð með að þetta fer nú að klárast en það er ekkert frí framundan hjá mér... kem heim 28. júní og fer að vinna í búinu 30. þannig að ég fæ svona rétt að heilsa uppá fjölskylduna áður en ég fer að vinna... ég hugsa að ég eigi eftir að tala stanslaust alla leiðina heim frá Keflavík og sennilega mest allan daginn þannig að ef að einhverjum langar að fá mig í heimsókn til að leyfa mér að tala mega endilega hafa samband... :P held að allir heima eigi eftir að vera búnir að fá nóg af mér eftir svona 2-3 tíma..:P nei ég segi bara svona... það verður svo gott að koma heim og komast aftur í rútínu... hlakka líka mikið til að fá að skoða björgunarmiðstöðina... það á að flytja inn 17. júní og þá fer maður að verða duglegur í ræktinni maður... :P
En jæja er þetta ekki komið nóg? Ég vil bara svona í restina senda mínar bestu kveðjur heim... sakna ykkar allra og vona að þið hafið ekki lent mjög illa í skjálftanum og ég öfunda ykkur ekki af tiltektinni... Þannig að bara baráttukveðjur heim á Selfoss!! ;) Kveðja Eva sem að fer alveg að koma heim...
Keðja er aldrei sterkari en veikasti hlekkur hennar...
01. júní 2008 klukkan 13:34
Eva Hrund Aðalbjarnardóttir 5 athugasemdir
Já ég er enn á lífi en það er svo sem ekkert mikið að frétta þannig séð... Ég er búin að komast að því að það eina sem að ég fæ að heyra af Eurovision er úrslitakvöldið... það er sko ekki svona stemning fyrir Eurovision hér eins og er heima... það er sko alveg á kristal tæru!!:P En annars er ég bara að vinna á næturvöktum í mjólkurpökkun... Sem að er rosa fínt... rosa rólegt en bara alveg ágætis vinna... en samt er ekkert spennandi að hjóla heim í svarta myrkri og á ljóslausu hjóli en þetta reddast... er komin með rosa góða nætursjón!;) get ekki beðið eftir að komast heim í langan dag :P Það verður alveg fáránlega dimmt hérna á nóttunni!!:S Svo sofna ég yfirleitt ekki fyrr en að það er farið að birta aftur sem að er ekki sniðugt vegna þess að þá sef ég voða lítið af því að mér finnst svo óþægilegt að sofa í birtu... vil helst hafa myrkvunartjöld í herberginu mínu... en hér eru engar gardínur... er rosa feginn að vera á annarri hæð þegar að maður er að klæða sig og svona!! ;)
Og ástæðan fyrir því að það eru engar myndir komnar inn er sú að ég gleymdi snúrunni heima... Þannig að það koma engar myndir fyrr en að ég kem heim býst ég við og það styttist nú óðum í það... bara rétt rúmar 5 vikur í síðasta vinnudaginn... ætla nefnilega að reyna að fá frí fimmtudag og föstudag áður en ég kem heim... bara svona til að þrífa herbergið og hafa svona smá my time...:P Fæ ekki helgarfrí fyrr en eftir 3 vikur held ég þannig að það er bara vinna framundan og allt á næturvöktum!!;) Þannig að tíminn á eftir að vera fljótur að líða á meðan að mamma og pabbi eru í sólinni á Tenerife... heyri í mömmu á hverjum degi sem að bjargar alveg deginum mínum en er búin að semja við bróðir minn um það að hlusta á tuðið í mér á meðan að mamma er í útlöndum... er nefnilega búin að komast að því að ég er rosa háð mömmu minni!!;) og ég er bara stolt af því...:P
En ég held að ég sé búin að bulla nóg núna... kommenta svo!!;)
20. maí 2008 klukkan 16:19
Eva Hrund Aðalbjarnardóttir 2 athugasemdir
Ég held að ég gæti ekki verið meira að mygla í þessari vinnu sem að ég er í... Var rosa bjartsýn þegar ég mætti á mánudaginn af því að ég átti loksins að fá að gera eitthvað annað en að strauja! En neinei ég var þar held ég í 2 tíma og þá var ég kölluð aftur á straujárnið... og blessuð kellingin vill engan annan en mig sem að ég veit ekki alveg hvort er gott eða vont... hún er nú svo sem alveg ágæt þegar hún er ekki að öskra á mig... Það er nefnilega einhvern veginn allt mér að kenna alveg sama hvort að ég kem eitthvað nálægt því eða ekki!! En það er bara svona að vera lítill ljótur nemi... finnst þetta svoldið leiðinlegt en þetta styrkir mann bara... Það er að segja þegar ég er að berjast við að öskra á hana á móti... ég nefnilega á að vera fullkomin!! ;)
En það var nú rosalega gaman hjá mér á mánudaginn... fór með tveimur flottum strákum á bar, út að borða á Hereford og í bíó... Við byrjuðum á því að keyra til Skive ég og strákurinn sem að býr með mér um klukkan 6 og fórum og hittum verkstjórann okkar á bar í Skive og fengum okkur einn kaldan í geggjuðu veðri... sá eiginlega eftir því að hafa ekki farið í pilsinu mínu!! ;) svo keyrðum við á Hereford sem að er alveg við smábátahöfnina og var geeeeeggjaaað útsýni frá staðnum bæði inní skóg og svo út á höfnina... Svo þegar við vorum öll búin að borða drifum við okkur í bíó á myndina Iron Man sem að kom mér bara nokkuð á óvart... hugsa nú samt að greyið strákarnir hafi skammast sín pínu þegar að ég hló á "vitlausum" stöðum í myndinni... komst alveg að því að danirnir hafa ekki sama húmor og Íslendingarnir...:P þannig að ég kæfði hláturinn eiginlega bara niður!! :P en svo var bara farið heim eftir mjög velheppnað kvöld!! :D Hvað haldiði annars að ég hafi fengið að borga mikið af þessu öllu saman??;) Svo er eitthvað verið að spekulera að fara eitthvað föstudagskvöldið til Skive og fara í keilu... Hlakka mikið til alltaf gott að hafa eitthvað fyrir stafni... fer nefnilega að fá leið á öllum myndunum mínum og er búin með báðar bækurnar sem að ég kom með sem að ég bjóst alls ekki við vegna þess hve löt ég hef verið við að lesa síðustu árin!! ;)
En það næsta sem að ég hef komist mjólkurfræðingastarfi hérna er sem sagt þessi vika sem að ég var að keyra ostamjólk fram í körin!! ;) annars hef ég verið að strauja osta og raða þeim á bretti eða raða skyri og jógúrti á bretti... en ég fæ nú að kíkja í ostagerðina í þar næstu viku og svo aftur í vélasalinn að keyra ostamjólk!! Svo fer ég bara að koma heim fyrr en varir... ég er nefnilega alveg að verða hálfnuð!! :P
Jáááá ég held að þetta sé bara orðið ágætt hjá mér er það ekki... koma fleiri fréttir seinna!! ;) Vonast samt til að heyra í sem flestum sem að vilja heyra í mér áður en ég kem heim!! ;)
08. maí 2008 klukkan 14:32
Eva Hrund Aðalbjarnardóttir 3 athugasemdir
Já hér er ég í Danaveldi að láta mér leiðast og er búin að vera að gera það í rétt tæpan mánuð núna... þannig að það eru bara 2 mánuðir eftir í að ég komist heim til allra vinanna minna... Sakna allra rosa mikið...
Annars er allt gott að frétta... ég bara vinn eins og hestur og reyni að láta daginn líða sem hraðast með að vera á netinu og svona!!;)
Ég bý í gríðarlega gömlu húsi sem að marrar og ískrar í eins og því sé borgað fyrir það og það eru köngulóarvefir út um allt!! :S ekki uppáhaldið mitt eins og margir vita...
Ég er að verða meistari í að strauja osta... já þið lásuð rétt ég er búin að vera í 3 vikur að strauja merkimiða á osta og pakka þeim inn í álpappír... En það lýtur nú allt út fyrir að ég fái að búa osta til í næstu viku... vona það allavega vegna þess að jesús minn almáttugur líður tíminn ofboðslega hægt þegar maður er bara með straujárnið... Verð nú samt orðin rosa massatröll ef að ég myndi halda áfram í þessari vinnu því að hver og einn ostur er svona sirka 8 kg og ætli ég sé ekki að strauja og setja á færiband svona 500 - 1000 osta á dag!!
Svo fór ég í fyrsta reiðnámskeiðstímann minn á þriðjudaginn og það var rosa gaman var á risastórum hesti þannig að ég eiginlega varð bara lofthrædd og jiiii hvað þeir eru hastir er með svaka harðsperrur í rassinum ennþá!!
Svo er ég að fara til Köben á morgun að hitta mömmu sem að er í heimsókn í Köben með vinnunni sinni og það er svaka tilhlökkun í gangi... er að reyna að koma mér í að fara að setja niður í tösku það sem að ég þarf að hafa með mér...
Set svo inn myndir þegar að ég er búin að taka þær en ég ætla að láta þetta nægja í bili af bulli heyrumst... endilega að kommenta þó að þetta sé ekki merkileg færsla... Ekki nema að tekið sé tillit til þess að ég hef ekki bloggað síðan í Febrúar.... ;)
24. apríl 2008 klukkan 16:12
Eva Hrund Aðalbjarnardóttir 3 athugasemdir
Jæja hvað á ég að segja ykkur merkilegt?? Ég fór í leikhús á föstudaginn sem er eitthvað sem að ég hef ekki gert síðan 2003 held ég.... Fór að sjá Jesus Christ Superstar... það var rosa gaman en ég hefði viljað hafa bara gömlu textana áfram sá ekki alveg tilganginn í því að breyta textunum en það er bara mín skoðun og svo finnst mér Krummi bara ekkert ofboðslega spes söngvari! En Jenni var rosa góður og á heildina litið var þetta mjög gaman... Sat við hliðina á voða sætum strák sem að var rosa gaman en rosa vandræðalegt!!:S:P hehe
Já og svo er ég að fara austur eftir tvær vikur hlakka rosa til að vera svona með Birgi og Ágústu aftur hjá þeim ég elska að vera fyrir austan það er svo fallegt landslagið og maður þarf ekki að labba nema bara í svona 10 mínútur og þá er maður komin að jökulsá og rosa flottu gljúfri... Rosa flott maður ég á einmitt nokkrar myndir af því síðan að familían fór þangað í haust!!
Svo styttist óðum í Danmerkur ferðina margræddu... er að vísu ekki búin að kaupa flugmiðana en það hlýtur að fara að koma að því.... Strákarnir fyrir norðan eru ekkert að flýta sér að þessu og ég ætlaði að reyna að vera samferða þeim svona til að maður sé ekki alveg einn, við þurfum að gista eina nótt á hóteli í Köben og svo að keyra til Odense og hitta þar mjólkurbússtjórana okkar... Váá ég get ekki ímyndað mér hversu mikill klaufi ég á eftir að vera í dönskunni fyrsta mánuðinn svo hlýtur þetta að koma... ég trúi ekki öðru en að ég eigi eftir að vera orðin rosa fluent í dönsku þegar ég kem heim aftur maður ég hlýt að ná þessu!! :P Er ekki alltaf gott að vera bjartsýnn? ;)
Jæja er þetta ekki komið gott af bulli í bili??
18. febrúar 2008 klukkan 17:08
Eva Hrund Aðalbjarnardóttir 3 athugasemdir
Þetta er ekki búið að vera mín vika bara alls ekki...
Það byrjaði á mánudaginn þegar að ég var að setja þvottavatn í kar til að það væri hægt að vaska upp smjörvélina, ég læt slönguna frá mér og það náttúrulega sprautast úr henni mjöööög heitt vatn og í því er sóti og ég náttúrulega labbaði fram fyrir slönguna þannig að ég fékk verulega slæman fyrsta stigs bruna á löppina þannig að ég fékk að fara heim úr vinnunni þann daginn og Jesus christ var það sárt ég get bara ekki lýst því... Ég skalf svo af sársauka... Svo var ég að láta rífa úr mér endajaxl og crap er það vont þegar deyfingin er að fara úr kjaftinum á manni.... En ég hef eitthvað til að "hlakka" til vegna þess að ég þarf að fara aftur eftir áramót og þá á að taka tvo í einu!! og vá ertu að grínast með það hvað þetta er dýrt eða ég borgaði 30þús fyrir þetta!!! :S ég veit ekki hvort að ég hef efni á að kaupa jólagjafir!! :S
En að einhverju aðeins skemmtilegri málefnum... Seinasta helgi var rosaleg maður... Ég var rosa rosa spennt yfir að fara á Mugison tónleika á föstudagskvöldið en þeim var frestað vegna veðurs því er nú andskotans ver og miður en svona by the way nýi diskurinn frá Mugison er alveg gífurlega góður svo sem kannski engar fréttir svona ef að maður hugsar út í að hann er nú með því besta sem hefur komið fram á sjónarsviðið á íslenska tónlistarsviðsins í mörg ár held ég bara!! ;)
En maður þurfti svo að vakna snemma á laugardagsmorguninn til að fara í förðun og hárgreiðslu fyrir jólahlaðborðið hjá vinnunni og ég kannski set eina mynd af mér hérna inn þegar að ég er búin að setja myndirnar í tölvuna... En það var ekkert smá gaman hjá okkur á jólahlaðborðinu var að vísu ekkert ofboðslega lengi held að ég hafi verið farin heim um hálf eitt en maður var vel saddur og búin að fá sér aðeins í aðra litlu tánna en þar sem að maður þurfti að vakna enn fyrr á sunnudagsmorguninn til að gera mig reddý í áttræðis afmælið hennar ömmu sem var rosa gaman en soldið stress en það mættu 130 manns og við frændsystkinin sungum saman örfá lög til heiðurs ömmu!! Það var svo sem fínt en ég hefði viljað að við hefðum æft aðeins meira en bara þessi eini hittingur hjá okkur!! En þetta er fjölskyldan mín.. Allt á síðustu stundu!!
En jæja þá er ég búin að ausa í ykkur það sem mér dettur í hug í bili!! ;)
06. desember 2007 klukkan 23:29
Eva Hrund Aðalbjarnardóttir 3 athugasemdir
Kannski ég tjái mig aðeins um blessuðu rjúpnaskytturnar okkar... Það verður einhvern veginn allt vitlaust þegar að rjúpnaveiðitímabilið byrjar... Það voru ekki liðnar 8 klukkutímar frá því að veiðitímabilið byrjaði og það þurfti að hjálpa þeim... Mér finnst það eiginlega bara nokk fyndið eiginlega!!:P
Björgunarsveitin fór í keilu um daginn og það var geggjað... Mér finnst svaka gaman í keilu þó svo að ég geti ekki bíbb neitt í henni...:P Hef samt einu sinni unnið Lórey og það var yndislegt!! ;) maður verður að vera stoltur af einhverju... :P ekkert illa meint Lórey mín... :P Mikið ofboðslega langar mig samt að gera eitthvað... mér leiðist hrikalega þannig að ef að þið hafið einhverjar hugmyndir handa mér að þá megið þið alveg láta mig vita!! ;)
04. nóvember 2007 klukkan 17:17
Eva Hrund Aðalbjarnardóttir 3 athugasemdir
Um mig: Ég er komin á þrítugsaldurinn og það hræðir mig!! ;) Neinei maður verður að eldast! Annars er ég þessi stelpa sem að hlustar á rokk og teknó til að komast í stuð... Ég veit ekki hvað ég á að segja... Jú ég bý í víst í Dk eins og er... kem heim í endaðan júní og hlakkar til að hitta ykkur!! :D